Jóga- og sjálfsræktarferð til Garda fyrir 55+

25.000 kr.

Þegar lífið færist yfir opnast nýr kafli – tími þar sem viska, reynsla og dýpri sjálfsskilningur geta orðið að dýrmætum ferðafélögum. Þessi ferð er sérstaklega hönnuð fyrir fólk sem vill nálgast þetta æviskeið af forvitni, virðingu og léttleika. Við skoðum hvernig lífið breytist með hækkandi aldri – ekki sem takmörkun, heldur sem tækifæri til dýpri sjálfsskilnings, andlegs þroska og aukinnar vellíðanar.

Við sameinum mjúka hreyfingu, sjálfsrækt, andlega næringu og dvöl í fegurð ítalskrar náttúru og nærum bæði líkama og sál.

14 in stock

Categories: , Tags: , , ,

Description

Um ferðina

Þegar lífið færist yfir opnast nýr kafli – tími þar sem viska, reynsla og dýpri sjálfsskilningur geta orðið að dýrmætum ferðafélögum. Þessi ferð er sérstaklega hönnuð fyrir fólk sem vill nálgast þetta æviskeið af forvitni, virðingu og léttleika. Við skoðum hvernig lífið breytist með hækkandi aldri – ekki sem takmörkun, heldur sem tækifæri til dýpri sjálfsskilnings, andlegs þroska og aukinnar vellíðanar.

Við sameinum mjúka hreyfingu, sjálfsrækt, andlega næringu og dvöl í fegurð ítalskrar náttúru og nærum bæði líkama og sál.

Gardavatn – rómuð fegurð og ítölsk lífsgleði

Við dveljum í hinum heillandi bæ Saló við Gardavatn með sitt rólega umhverfi, fallegar gönguleiðir með vatninu, litlar verslanir, kaffihús og sögulegar byggingar.
Frá Saló er stutt í töfrandi bæi eins og Sirmione, Limone og Gargnano og við njótum einnig leiðsagnar í dagsferð til hinnar rómantísku borgar Veróna, þar sem saga Rómeós og Júlíu lifnar við.

Jóga sem hentar öllum – stólajóga og djúp slökun í jóga nidra

Við leggjum áherslu á að allir geti tekið þátt, óháð liðleika eða fyrri reynslu.

Við vinnum með:

  • stólajóga, sem er öruggt, áhrifaríkt og fullkomið fyrir 55+
  • kundalini jóga, sem styrkir orkuflæði og jafnvægi
  • jóga nidra, djúpa slökun sem róar hugann og nærir taugakerfið

Stólajóga er alls ekki síðra en jóga á dýnu – það býður upp á sama ávinning, en með meiri mýkt og auðveldara aðgengi.

Sjálfsrækt sem styrkir nýjan lífskafla

Á hverjum morgni vinnum við með efni sem tengjast lífinu eftir sextugt:

  • Mikilvægi félagslegra tengsla í nokkrum víddum
  • Tækifæri og áskoranir á þriðja æviskeiðinu
  • Hvað einkennir ólík tímabil ævinnar og lífssögu okkar
  • Samskipti og samskiptasaga
  • Leiðir til að halda góðri heilsu sem lengst (andlega, félagslega, líkamlega)
  • Hvað rannsóknir sýna varðandi eftirsjá á efri árum

Þetta eru mildar, uppbyggjandi stundir sem hjálpa þátttakendum að dýpka sjálfsskilning og skapa nýja sýn á nýjan lífskafla.

Öndun, hugleiðsla og náttúran sem kennari

Við iðkum:

  • öndunaræfingar sem róa og styrkja
  • hugleiðslu sem leiðir inn í kyrrð
  • núvitund í daglegum athöfnum
  • léttar göngur í náttúru þar sem við tengjumst umhverfinu og sjálfum okkur

Gardavatn er fullkominn staður til að finna innri ró – vatnið, fjöllin og litlu bæirnir skapa umgjörð sem styður við endurnæringu.

Frjáls tími og ítölsk lífsgæði

Eftir hádegi er oft frjáls tími þar sem þú getur:

  • slakað við sundlaugina
  • farið í hjólatúr
  • siglt á ferju milli bæja
  • notið ískalds gelato á torginu
  • eða einfaldlega leyft þér að vera

Ferðir um Gardavatn og dagsferð til Veróna eru hápunktar ferðarinnar og gefa innsýn inn i sögu og menningu Ítalíu.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Jóga- og sjálfsræktarferð til Garda fyrir 55+”

Your email address will not be published. Required fields are marked *