Ítalía – Gardavatn

Lystisemdir Ítalíu

Helstu upplýsingar

Lengd ferðar

8 dagar / 7 nætur

Tímabil

21.-28. september 2024

Tegund jóga

Jóga Nidra og Kundalini Jóga

Verð á mann

1 í 2ja manna herb.: 289.000 kr.
2 í 2ja manna herb.: 249.000 kr.

P

Innifalið

Flug, gisting með morgunverði, dagsferð til borgarinnar Veróna, ferðir til og frá flugvelli, námskeið í jóga og leiðsögn í ferðum.

Kennarar

Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir
leiðsögumaður og jógakennari

Estrid Þorvaldsdóttir
leiðsögumaður og jógakennari

Um ferðina

Við dveljum í bænum Salo sem liggur við hið rómaða Gardavatn. Að morgni iðkum við jóga í undurfögru umhverfi í faðmi Alpafjalla. Eftir hádegi kynnumst við ítalskri menningu með heimsóknum til bæja og borga. Sirmione er fallegur gamall bær við Gardavatn, Veróna er skammt frá Gardavatni og er oft kölluð litla Róm vegna sinna gömlu rómversku minja. 

Your Title Goes Here

Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.

Dagur 1

Flug frá Keflavík síðdegis og lent á Malpensa flugvelli. Við tekur rútuferð á hótel við Gardavatn

Dagur 2

Við hefjum daginn á jóga og morgunverði og síðan munum við skoða okkur um. Hótelið er í bænum Saló við vesturbakka Gardavatnsins. Það tekur um 20 mínútur að ganga niður að vatninu og þar er skemmtileg gönguleið með vatnsbakkanum. Saló er um 10.000 manna bær og státar af dómkirkju í gotneskum stíl frá 15. öld. Þar við torgið er hægt að gæða sér á ís sem sagður er undursamlega rjómakenndur og sá besti við allt Gardavatn – ísbúðin heitir La Casa del Dolce eða Hús hins sæta. Þar er líka gamli bærinn og helsta verslunargatan, Via San Carlo, sem liggur frá dómkirkjunni að torginu Piazza Zanelli.

Dagur 3

Við hefjum daginn á jóga og síðan er dagurinn þinn. Hvað viltu að gera – fara í hjólatúr eða göngutúr, taka ferju í einhvern bæjanna við vatnið, kíkja á vínbúgarð, kannski slaka við vatnið eða við sundlaugina á hótelinu?

Dagur 4

Að loknu jóga og morgunverði verður val um að fara í siglingu frá bænum okkar Saló að eyjunni Isola del Garda sem er í einkaeigu, lítil en yndisfögur með fallegri lystihöll. Þaðan siglum við áfram til Sirmione, sem liggur á skaga við vatnið. Sirmione er fallegur gamall bær með kastala frá miðöldum og skemmtilegar litlar þröngar götur sem gaman er að þræða, kíkja í litlar búðir, setjast á kaffihús við torgið, og kannski fá sér eins og einn ítalskan ís í einhverri ísbúðanna. Greiða þarf aðgang í bátinn.

Dagur 5
Við hefjum dag að venju á jóga og morgunverði og síðan er frjáls dagur. Það er margt hægt að gera – skreppa í hjólatúr, taka ferju í einhvern bæjanna við vatnið, fara í létta göngu eða slaka við hótelið eða Gardavatnið fagra … eða bara eitthvað sem manni dettur í hug.
Dagur 6

Við förum með rútu til hinnar fallegu borgar Verona, þar má meðal annars líta hina einu sönnu Júlíu augum en saga hennar og Rómeós gerist þar. Við kíkjum á hús Júlíu þar sem Rómeó söng til ástarinnar sinnar undir svölunum. Við göngum um fallegar götur, sjáum ævafornt hringleikahús frá tíð Rómverja og förum um göng kastalans við ána.

Veróna hefur verið sögð eins og Rómarborg í smækkaðri mynd, þar eru alltént falleg torg og rómverskar minjar. Áin Adige liðast um gamla miðbæinn með ótal fallegum brúm, unnt er að kíkja inn í einhverja af öllum þeim gömlu kirkjum sem í bænum eru, rölta um markaðstorgið og setjast á veitingastað og kaffihús og fylgjast með mannlífinu.

Dagur 7

Við hefjum daginn á jóga og síðan er dagurinn þinn. Hvað viltu að gera – fara í hjólatúr eða göngutúr, taka ferju í einhvern bæjanna við vatnið, kíkja á vínbúgarð, kannski slaka við vatnið eða við sundlaugina á hótelinu?

Dagur 8

Við kveðjum hótelið okkar og bæinn Salo og ökum á Malpensaflugvöll. Hægt er að kaupa ferðina án flugs og bóka flugið sjálfur sé áhugi á að lengja ferðina eða breyta einhverju.

Hápunktar ferðar

Algengustu spurningarnar

Your Title Goes Here

Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.

Þarf ég að vera liðug/ur til að vera með í jóga?

Nei, svo sannarlega ekki. Í ferðunum er ýmist leitt kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól, fyrir þá sem líkar illa að sitja í jógastöðu á dýnu. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.
Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og líkamlegt ástand eða hreyfifærni hamlar engum að taka þátt í því.

Hvernig jóga er kennt?

Við kennum ýmist kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga er tíminn samsettur af upphitun, röð af jógaæfingum, hugleiðslu og slökun. Með iðkun kundalini jóga flæðir lífsorkan okkar og eykur og jafnar streymi milli orkustöðva. Við fáum meira jafnvægi í starfsemi líkamans, þar með talið milli heilahvela og mikil áhersla er á örvun innkirtlakerfisins sem er svo mikilvægt heilbrigði okkar. Við þjálfum andlegan og líkamlegan styrk með líkamlegum æfingum og öndunaræfingum sem hreinsa og auka flæði orkunnar, undirstöðu heilbrigðis. Hugleiðslan í lok tímans færir okkur ró sem og andlegan styrk, og úrvinnslu úr því sem kann að valda okkur spennu og streitu.

Í jóga nidra er leidd slökun þar sem hvílt er í liggjandi stöðu og æfingar eru gerðar tengdar meðvitund um líkama og öndun sem miða að því að ná meiri ró og dýpri slökun. Í dýpstu slökun er komið inn í ástand þar sem heilun og friðsæld ríkir. Mörg okkar þekkja það ástand þegar hugurinn heldur okkur eins og í spennitreyju með sífelldum hugsunum en í dýpstu slökun losnum við þaðan. Einnig getur þar farið fram hreinsun alveg niður í undivitund, oft án þess að við vitum af því. Jóga nidra hentar vel þeim sem eru að fást við kvíða, streitu og kulnun.

Mér finnst erfitt að sitja í jógastellingu - get ég tekið þátt?

Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og því geta allir lagt stund á þetta jóga.
Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf, er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.

Fá starfsmannahópar styrki frá sínu félagi fyrir ferðinni?

Mörg stéttarfélög veita styrki fyrir ferðum eins og þeim sem Eilífðarsól stendur fyrir. Undanfarin ár hafa hópar starfsmanna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu farið í jógaferðir og lýst ánægju sinni með þær svo vitnað sé í ein ummælin hér á síðunni … "Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ‍️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"

Kynntu þér málið hjá þínu stéttarfélagi eða sendu línu til okkar og við göngum í málið.

Eru ferðirnar ykkar bara fyrir konur?

Nei, alls ekki. Margir karlmenn hafa tekið þátt í starfsmannahópaferðum með okkur og notið þeirra jafn vel og konur. Karlmenn þurfa engu síður en konur að læra að slaka á og takast á við streitu.

Henta þessar ferðir einstaklingum?

Já, í ferðunum kynnast þátttakendur mjög vel og oft verða til vináttusambönd sem vara áfram og sumir hópar hittast áfram eftir ferðina eða halda sambandi sem segir nokkuð um þá góðu stemmingu sem fylgir þessum ferðum.

Umsagnir

Mæli heilshugar með

"Ég fór í júní í svona jógaferð sem var algjörlega dásamleg. Kúndalíni jóga á morgnana og hugleiðsla á kvöldin. Fínt lítið fjölskylduhótel og frábær ítalskur matur. Guðrún Ingibjörg jógakennari og ferðafélagarnir allir sem einn hið besta fólk. Mæli heilshugar með svona jógafrísferð."

Frábær ferð

"Alveg frábær ferð, mæli með þessu. Yndislegur farastjóri, skemmtilegir ferðafélagar, og unaðslegt umhverfi. "

Skylduferð

"Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ‍️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"

Besta sem ég hef gert fyrir mig ❤

Fór í jógaferð til Ítalíu með Guðrúnu og Sigríði Huldu í september sl. Þessi ferð er alveg ógleymanleg, sá auglýsinguna og bókaði mig og sá sko ekki eftir því. Það er nauðsynlegt að kúpla sig frá öllu, hugsa um elsku sig -kynnast frábærum konum alstaðar af landinu komandi úr alskonar aðstæðum. Jógað-hugleiðslan-sjálfsræktin þetta var magnað . Mæli með þessu 100% og langar aftur. Nýti mér fullt af því sem ég lærði og lærði líka fullt um sjálfa mig. Þær tvær eru snillingar.

- Kolbrún Stefánsdóttir

Vel heppnuð ferð

Vel heppnuð ferð. Hjólaferðirnar hápunkturinn.

- Ingvar Jónsson

Gaman að koma til Salo

Lítill og fallegur bær. Stutt í allar áttir. Fórum til Verona í dagsferð sem var mjög skemmtilegt. Einnig var kvöldið á vínekrunni ógleymanlegt.

- Kim Juncker Nielsen

Jógatímarnir komu á óvart

Frábært að blanda saman hreyfingu og slökun. Jógatímarnir komu á óvart. Frábært umhverfi til fara í hjólaferðir.

- Gauti Marinósson

Góða fararstjórn

Frábær ferð þar sem allt var gert til að láta okkur líða vel. Góð fararstjórn.

- Arnar Halldórsson

Fallegur staður

Fallegur staður, fallegt hótel. Jógað og hjólaferðirnar voru frábærar. Maturinnn var líka frábær.

- Jóhann Gunnar Einarsso

Hafa samband