Slóvenía – Bled

Töfrandi fegurð

Helstu upplýsingar

Lengd ferðar

8 dagar / 7 nætur

Tímabil

Vor / Haust

Tegund jóga

Jóga Nidra

Verð

Tilboð fyrir hópa

P

Innifalið

Flug, ferðir til og frá flugvelli, gisting með morgunverði, Jóga Nidra alla morgna, gönguleiðsögn og leiðsögn í ferðum. Bátsferð á Bled vatni, aðgangur í Vintgar Gorge gljúfrið.

Kennarar

Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir
leiðsögumaður og jógakennari

Estrid Þorvaldsdóttir
leiðsögumaður og jógakennari

Um ferðina

Hér er einblínt á að kúpla sig út með að una í einstaklega fagurri náttúru, fara í göngur og stunda Jóga Nidra. Það er leidd slökun þar sem að mestum hluta er hvílt í liggjandi stöðu. Stig af stigi er farið í dýpri og dýpri slökun sem leiðir mann inn á stað heilunar og friðsældar. Jóga Nidra hentar öllum – en ekki síst þeim sem stríða við streitu og ofþreytu.

Við dveljum við rómantískt Bled vatnið, iðkum jóga að morgni, síðan tekur við gönguferð sem miðast við 2-6 klukkustundir, og einn daginn förum við í dagsferð í rútu og heimsækjum höfuðborgina Ljubljana, sem státar af undurfallegum miðbæ þar sem á hæð trónir miðaldakastali og áin Ljubljanica liðast undir fagrar brýr.

Hápunktar ferðar

Your Title Goes Here

Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.

Dagur 1 - Ferðalag til Bled

Flug frá Keflavík til flugvallar í grennd við Bled og ekið í rútu á áfangastað. Dagskrá fyrsta dags tekur mið af komutíma á hótel.

Dagur 2 - Njótum fegurðar Bled vatns

Við hefjum daginn á yndislegu yoga nidra sem kennir okkur að sleppa og slaka og njóta þess sem er. Að því loknu tekur við dagur þar sem Bled vatnsins er notið. Umhverfið er eins og í ævintýri, þar sem rómantísk fegurð ríkir. Undir háum tindum Alpanna kúrir vatnið og við blasa villur og sumarhallir við bakka. Í miðju stöðuvatnsins er eyjan Blejski Otok með fagurri kirkju sem geymir leyndardóm í turni sínum. Og á háum kletti um hundrað metra ofan vatnsins situr Blejski Grad, kastalinn sem er vel þess virði að ganga upp til þótt það kunni að taka smá í lærin. Kastalinn er fallega staðsettur með gott útsýni yfir vatnið og þaðan má sjá eyjuna Blejski Otok sem er eins og perla í fögru vatninu.

Dagur 3 - Gönguferð og bátsferð um Bled

Eftir jóga og morgunverð förum við í gönguferð sem liggur umhverfis vatnið. Að því loknu siglum við út í eyjuna á vatninu. Svo gefst frjáls tími til að rölta um götur bæjarins við vatnið en þar búa um 6000 manns.
Bled vatn liggur suður af Júliönsku ölpunum og myndaðist fyrir um 14.000 árum, skorið svo fagurlega af ísaldarjökli sem í leiðinni skóp fagra dali þar í kring. Vatnið er rúmir tveir kílómetrar að lengd og að breidd frá hálfum til eins kílómetra. Dýptin nær 31 metrum – svo jökullinn sem mótaði þetta fagra svæði hefur verið þokkalega stór. Að sumarlagi verður vatnið um 24 gráðu heitt og því vinsælt til baða á þeim tíma.

Dagur 4 - Ganga upp í hæðir ofan Bled

Eftir slakandi og gott yoga nidra og morgunverð göngum við að vesturenda Bled vatnsins og leggjum upp í 4,5 km göngu sem leiðir okkur upp í hæðir og gefur undursamlegt útsýni yfir svæðið. Gönguleiðin liggur í hring um skógarstíga upp á tind og notið er unaðssemda náttúru. Hæsti punktur nær um 750 metrum og lagt er upp í 500 metra hæð svo gangan er við flestra hæfi. Einnig er hægt að ganga einungis hluta leiðar.

Dagur 5 - Dagsferð til Ljubljana

Að loknu jóga og morgunverði höldum við til borgarinnar Ljubljana, höfuðborgar landsins en þar búa um 300.000 manns. Hún hefur oft verið nefnd litla Prag og ástæðan er falleg borgarmiðja hennar með brúm og fögrum byggingum sem mynda fallega heild. Arkitektinn Jože Plečnik er hönnuður flestra bygginga í miðbæ Ljubljana en stór hluti borgarinnar hrundi í jarðskjálftum árið 1895. Brýrnar þrjár eru eitt af verkum hans og liggja yfir ána Ljubljanicu sem hringar sig um elsta hluta borgarinnar. Þar í miðju er kastalinn, Ljubljanski Grad, staðsettur efst á hæð. Þangað má ganga þröngar götur upp gegnum bæinn eða taka lyftu sem flytur mann upp undraskjótt.
Við enda brúnna þriggja er bleika kirkjan og þar fyrir framan er stytta af France Preseren, ljóðskáldinu í hjarta bæjarins sem horfir þvert yfir torgið til elskunnar sinnar – hennar Juliju Primic sem á lágmynd veifar úr glugga – til hennar orti hann ótal ástarljóð. Ævi hans er um margt lík ævi þjóðskáldsins okkar, Jónasar Hallgrímssonar. Í þessari fallegu borg er margt að sjá og við höldum heim til Bled síðari hluta dags.

Dagur 6 - Gönguferð inn í Vintgar Gorge gljúfrið

Við tökum rútu stutta leið að Vintgar Gorge sem er stórfenglegt, þröngt gljúfur þar sem tær falleg á rennur um. Gljúfrið er lagt að hluta af göngupöllum og brúm svo oft er farið yfir ána og mörg falleg sjónarhorn gefast á þessari leið. Þetta er auðveld en ævintýraleg gönguleið með nokkrum tröppum en að mestum hluta er leiðin tiltölulega slétt og aðgengileg. Stígarnir liggja með árbakka og gott er að vera í góðum gönguskóm.

Dagur 7 - Dagurinn er þinn!

Við hefjum daginn á yoga nidra og morgunverði. Það sem eftir er dags er frjáls tími. Það er margt hægt að gera – skreppa í hjólatúr, fara í létta eða krefjandi göngu, fara í hjólatúr, taka strætó til Bohinj sem er fallegt stöðuvatn í grenndinni og hefur ýmsa afþreyingu í boði eins og að fara með kláfi upp á fjall eða svífa í fallhlíf af fjallstoppi – vanti mann adrenalín í kroppinn! Einnig er hægt að fara í göngu umhverfis Bohinj vatn og feta merkta göngulieð sem er 12 km löng og tekur 2-5 klst. að ganga og fer eftir gönguhraða og stoppum.
En svo er líka hægt að slaka á eða gera bara eitthvað allt annað sem til hugar kemur – dagurinn er þinn!

Dagur 8 - Ferðalag heim

Við kveðjum hótelið okkar og höldum af stað áleiðis til flugvallarins. Flugtími ræður hvort unnt verður að staldra einhvers staðar við á leiðinni og skoða og njóta áður en farið er á flugvöll.

Algengustu spurningarnar

Your Title Goes Here

Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.

Þarf ég að vera liðug/ur til að vera með í jóga?

Nei, svo sannarlega ekki. Í ferðunum er ýmist leitt kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól, fyrir þá sem líkar illa að sitja í jógastöðu á dýnu. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.
Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og líkamlegt ástand eða hreyfifærni hamlar engum að taka þátt í því.

Hvernig jóga er kennt?

Við kennum ýmist kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga er tíminn samsettur af upphitun, röð af jógaæfingum, hugleiðslu og slökun. Með iðkun kundalini jóga flæðir lífsorkan okkar og eykur og jafnar streymi milli orkustöðva. Við fáum meira jafnvægi í starfsemi líkamans, þar með talið milli heilahvela og mikil áhersla er á örvun innkirtlakerfisins sem er svo mikilvægt heilbrigði okkar. Við þjálfum andlegan og líkamlegan styrk með líkamlegum æfingum og öndunaræfingum sem hreinsa og auka flæði orkunnar, undirstöðu heilbrigðis. Hugleiðslan í lok tímans færir okkur ró sem og andlegan styrk, og úrvinnslu úr því sem kann að valda okkur spennu og streitu.

Í jóga nidra er leidd slökun þar sem hvílt er í liggjandi stöðu og æfingar eru gerðar tengdar meðvitund um líkama og öndun sem miða að því að ná meiri ró og dýpri slökun. Í dýpstu slökun er komið inn í ástand þar sem heilun og friðsæld ríkir. Mörg okkar þekkja það ástand þegar hugurinn heldur okkur eins og í spennitreyju með sífelldum hugsunum en í dýpstu slökun losnum við þaðan. Einnig getur þar farið fram hreinsun alveg niður í undivitund, oft án þess að við vitum af því. Jóga nidra hentar vel þeim sem eru að fást við kvíða, streitu og kulnun.

Mér finnst erfitt að sitja í jógastellingu - get ég tekið þátt?

Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og því geta allir lagt stund á þetta jóga.
Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf, er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.

Fá starfsmannahópar styrki frá sínu félagi fyrir ferðinni?

Mörg stéttarfélög veita styrki fyrir ferðum eins og þeim sem Eilífðarsól stendur fyrir. Undanfarin ár hafa hópar starfsmanna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu farið í jógaferðir og lýst ánægju sinni með þær svo vitnað sé í ein ummælin hér á síðunni … "Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ‍️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"

Kynntu þér málið hjá þínu stéttarfélagi eða sendu línu til okkar og við göngum í málið.

Eru ferðirnar ykkar bara fyrir konur?

Nei, alls ekki. Margir karlmenn hafa tekið þátt í starfsmannahópaferðum með okkur og notið þeirra jafn vel og konur. Karlmenn þurfa engu síður en konur að læra að slaka á og takast á við streitu.

Henta þessar ferðir einstaklingum?

Já, í ferðunum kynnast þátttakendur mjög vel og oft verða til vináttusambönd sem vara áfram og sumir hópar hittast áfram eftir ferðina eða halda sambandi sem segir nokkuð um þá góðu stemmingu sem fylgir þessum ferðum.

Umsagnir

Mæli heilshugar með

"Ég fór í júní í svona jógaferð sem var algjörlega dásamleg. Kúndalíni jóga á morgnana og hugleiðsla á kvöldin. Fínt lítið fjölskylduhótel og frábær ítalskur matur. Guðrún Ingibjörg jógakennari og ferðafélagarnir allir sem einn hið besta fólk. Mæli heilshugar með svona jógafrísferð."

Frábær ferð

"Alveg frábær ferð, mæli með þessu. Yndislegur farastjóri, skemmtilegir ferðafélagar, og unaðslegt umhverfi. "

Skylduferð

"Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ‍️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"

Besta sem ég hef gert fyrir mig ❤

Fór í jógaferð til Ítalíu með Guðrúnu og Sigríði Huldu í september sl. Þessi ferð er alveg ógleymanleg, sá auglýsinguna og bókaði mig og sá sko ekki eftir því. Það er nauðsynlegt að kúpla sig frá öllu, hugsa um elsku sig -kynnast frábærum konum alstaðar af landinu komandi úr alskonar aðstæðum. Jógað-hugleiðslan-sjálfsræktin þetta var magnað . Mæli með þessu 100% og langar aftur. Nýti mér fullt af því sem ég lærði og lærði líka fullt um sjálfa mig. Þær tvær eru snillingar.

- Kolbrún Stefánsdóttir

Vel heppnuð ferð

Vel heppnuð ferð. Hjólaferðirnar hápunkturinn.

- Ingvar Jónsson

Gaman að koma til Salo

Lítill og fallegur bær. Stutt í allar áttir. Fórum til Verona í dagsferð sem var mjög skemmtilegt. Einnig var kvöldið á vínekrunni ógleymanlegt.

- Kim Juncker Nielsen

Jógatímarnir komu á óvart

Frábært að blanda saman hreyfingu og slökun. Jógatímarnir komu á óvart. Frábært umhverfi til fara í hjólaferðir.

- Gauti Marinósson

Góða fararstjórn

Frábær ferð þar sem allt var gert til að láta okkur líða vel. Góð fararstjórn.

- Arnar Halldórsson

Fallegur staður

Fallegur staður, fallegt hótel. Jógað og hjólaferðirnar voru frábærar. Maturinnn var líka frábær.

- Jóhann Gunnar Einarsso

Hafa samband