Áfangastaðir

Hér er hægt að lesa betur um þá áfangastaði sem að við ferðumst til

Ítalía

Gardavatn

Gardavatn er stærst ítölsku vatnanna og við það liggja margir sögufrægir bæir og gömul saga kúrir víða sem gaman er að gægjast inn í, hvort sem er inn í heim Rómverja, miðalda eða nútímans. Kastalar, virki, gamlar kirkjur og klaustur má sjá víða upp um hæðir með tignarleg fjöll Alpa í bakgrunni.

Como vatn

Como vatnið er undurfagurt og víðast hvar lítið undirlendi við það þannig að þar liggja þröngir og oft gamaldags bæir sem eru svo ótrúlega heillandi, fallegir og rómantískir. Með vatninu liggja fornar gönguleiðir og því er Como vatnið upplagt fyrir þá sem vilja fara í göngur með undurfallegu útsýni.

Iseo vatn

Iseo vatnið liggur í dal innan um hæðir og fjallstinda og þar eru fallegir bæir á vatnsbökkum og upp til fjalla, sumir þeirra litlir með sveitakyrrð og skemmtilegum gönguleiðum sem gönguþyrstir elska að þræða. Eyjan Monte Isola liggur í vatninu með sínu rólega yfirbragði, þar hafa íbúar lifað af fiskveiðum og ólífurækt um aldir.

Slóvenía, Tyrkland og Tenerife

Slóvenía

Slóvenía er land mikillar náttúrufegurðar og ein af perlum þess er hið töfrandi Bled vatn sem liggur í dal umkringt hæðum og Alpatindum. Sannkölluð draumaveröld með höllum og villum við bakkana og í vatninu kúrir eyja með sögufrægri kirkju. Önnur perla er hin snotra Ljubljana, með sinn fallega miðbæ við bakka árinnar Ljubljanicu.

Tyrkland

Tyrkland er magnað land með eldgamla menningu og sögu þar sem vagga evrópskrar menningar á rætur. Landið liggur á mótum Evrópu og Asíu með framandi og heillandi stemmningu. Strandbærinn Fethyie er á suðvesturströnd landsins í fögru umhverfi við flóa, þar nærri er Bláa lónið þeirra sem og hinn sérkennilegi bær Kayaköy.

Tenerife

Tenerife er eyja hins eilífa sumars. Þangað er upplagt að fara að vetrarlagi og njóta slökunar og jóga. Þeir sem ekki vilja slaka endalaust hafa ýmsa góða möguleika til að sjá fallega og stórbrotna náttúru á þessari fallegu eyju sem hefur svo margt fleira en túristastrendur. Eldfjallið Teide er drottning eyjarinnar með sinn háa fjallstind skýjum ofar.

Algengustu spurningarnar

Your Title Goes Here

Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.

Þarf ég að vera liðug/ur til að vera með í jóga?

Nei, svo sannarlega ekki. Í ferðunum er ýmist leitt kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól, fyrir þá sem líkar illa að sitja í jógastöðu á dýnu. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.
Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og líkamlegt ástand eða hreyfifærni hamlar engum að taka þátt í því.

Hvernig jóga er kennt?

Við kennum ýmist kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga er tíminn samsettur af upphitun, röð af jógaæfingum, hugleiðslu og slökun. Með iðkun kundalini jóga flæðir lífsorkan okkar og eykur og jafnar streymi milli orkustöðva. Við fáum meira jafnvægi í starfsemi líkamans, þar með talið milli heilahvela og mikil áhersla er á örvun innkirtlakerfisins sem er svo mikilvægt heilbrigði okkar. Við þjálfum andlegan og líkamlegan styrk með líkamlegum æfingum og öndunaræfingum sem hreinsa og auka flæði orkunnar, undirstöðu heilbrigðis. Hugleiðslan í lok tímans færir okkur ró sem og andlegan styrk, og úrvinnslu úr því sem kann að valda okkur spennu og streitu.

Í jóga nidra er leidd slökun þar sem hvílt er í liggjandi stöðu og æfingar eru gerðar tengdar meðvitund um líkama og öndun sem miða að því að ná meiri ró og dýpri slökun. Í dýpstu slökun er komið inn í ástand þar sem heilun og friðsæld ríkir. Mörg okkar þekkja það ástand þegar hugurinn heldur okkur eins og í spennitreyju með sífelldum hugsunum en í dýpstu slökun losnum við þaðan. Einnig getur þar farið fram hreinsun alveg niður í undivitund, oft án þess að við vitum af því. Jóga nidra hentar vel þeim sem eru að fást við kvíða, streitu og kulnun.

Mér finnst erfitt að sitja í jógastellingu - get ég tekið þátt?

Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og því geta allir lagt stund á þetta jóga.
Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf, er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.

Fá starfsmannahópar styrki frá sínu félagi fyrir ferðinni?

Mörg stéttarfélög veita styrki fyrir ferðum eins og þeim sem Eilífðarsól stendur fyrir. Undanfarin ár hafa hópar starfsmanna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu farið í jógaferðir og lýst ánægju sinni með þær svo vitnað sé í ein ummælin hér á síðunni … "Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ‍️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"

Kynntu þér málið hjá þínu stéttarfélagi eða sendu línu til okkar og við göngum í málið.

Eru ferðirnar ykkar bara fyrir konur?

Nei, alls ekki. Margir karlmenn hafa tekið þátt í starfsmannahópaferðum með okkur og notið þeirra jafn vel og konur. Karlmenn þurfa engu síður en konur að læra að slaka á og takast á við streitu.

Henta þessar ferðir einstaklingum?

Já, í ferðunum kynnast þátttakendur mjög vel og oft verða til vináttusambönd sem vara áfram og sumir hópar hittast áfram eftir ferðina eða halda sambandi sem segir nokkuð um þá góðu stemmingu sem fylgir þessum ferðum.

Umsagnir

Mæli heilshugar með

"Ég fór í júní í svona jógaferð sem var algjörlega dásamleg. Kúndalíni jóga á morgnana og hugleiðsla á kvöldin. Fínt lítið fjölskylduhótel og frábær ítalskur matur. Guðrún Ingibjörg jógakennari og ferðafélagarnir allir sem einn hið besta fólk. Mæli heilshugar með svona jógafrísferð."

Frábær ferð

"Alveg frábær ferð, mæli með þessu. Yndislegur farastjóri, skemmtilegir ferðafélagar, og unaðslegt umhverfi. "

Skylduferð

"Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ‍️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"

Besta sem ég hef gert fyrir mig ❤

Fór í jógaferð til Ítalíu með Guðrúnu og Sigríði Huldu í september sl. Þessi ferð er alveg ógleymanleg, sá auglýsinguna og bókaði mig og sá sko ekki eftir því. Það er nauðsynlegt að kúpla sig frá öllu, hugsa um elsku sig -kynnast frábærum konum alstaðar af landinu komandi úr alskonar aðstæðum. Jógað-hugleiðslan-sjálfsræktin þetta var magnað . Mæli með þessu 100% og langar aftur. Nýti mér fullt af því sem ég lærði og lærði líka fullt um sjálfa mig. Þær tvær eru snillingar.

- Kolbrún Stefánsdóttir

Vel heppnuð ferð

Vel heppnuð ferð. Hjólaferðirnar hápunkturinn.

- Ingvar Jónsson

Gaman að koma til Salo

Lítill og fallegur bær. Stutt í allar áttir. Fórum til Verona í dagsferð sem var mjög skemmtilegt. Einnig var kvöldið á vínekrunni ógleymanlegt.

- Kim Juncker Nielsen

Jógatímarnir komu á óvart

Frábært að blanda saman hreyfingu og slökun. Jógatímarnir komu á óvart. Frábært umhverfi til fara í hjólaferðir.

- Gauti Marinósson

Góða fararstjórn

Frábær ferð þar sem allt var gert til að láta okkur líða vel. Góð fararstjórn.

- Arnar Halldórsson

Fallegur staður

Fallegur staður, fallegt hótel. Jógað og hjólaferðirnar voru frábærar. Maturinnn var líka frábær.

- Jóhann Gunnar Einarsso

Hafa samband

Kennitala 610313-1240
Vsk nr. 113641
Hafa samband

Guðrún Ingibjörg
Jógakennari

894 8779
gudrun@eilifdarsol.is