Ítalía – Gardavatn
Jóga- og sjálfsræktarferð til Garda fyrir 60+
Finndu þína innri ró, visku og vellíðan
Helstu upplýsingar
Lengd ferðar
8 dagar / 7 nætur
Tímabil
4.-11. október 2026
Tegund jóga
Stólajóga / Jóga nidra
Verð
340.000 kr. í eins manns herbergi.
Innifalið
Flug með Icelandair til Malpensa, gisting með morgunverði, námskeið í jóga og sjálfsrækt, dagsferð með leiðsögn í rútu til Veróna, gönguleiðsögn og leiðsögn í siglingu um Gardavatn, ferðir til og frá flugvelli.
Kennarar
Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir
leiðsögumaður og jógakennari
Sigríður Hulda Jónsdóttir
MBA og MA í náms- og starfsráðgjöf og eigandi SHJ ráðgjafar
Um ferðina
Þegar lífið færist yfir eftir sextugt opnast nýr kafli – tími þar sem viska, reynsla og dýpri sjálfsskilningur geta orðið að dýrmætum ferðafélögum. Þessi ferð er sérstaklega hönnuð fyrir fólk sem vill nálgast þetta æviskeið af forvitni, virðingu og léttleika. Við skoðum hvernig lífið breytist með hækkandi aldri – ekki sem takmörkun, heldur sem tækifæri til dýpri sjálfsskilnings, andlegs þroska og aukinnar vellíðanar.
Við sameinum mjúka hreyfingu, sjálfsrækt, andlega næringu og dvöl í fegurð ítalskrar náttúru og nærum bæði líkama og sál.
Gardavatn – rómuð fegurð og ítölsk lífsgleði
Við dveljum í hinum heillandi bæ Saló við Gardavatn með sitt rólega umhverfi, fallegar gönguleiðir með vatninu, litlar verslanir, kaffihús og sögulegar byggingar.
Frá Saló er stutt í töfrandi bæi eins og Sirmione, Limone og Gargnano og við njótum einnig leiðsagnar í dagsferð til hinnar rómantísku borgar Veróna, þar sem saga Rómeós og Júlíu lifnar við.
Jóga sem hentar öllum – stólajóga og djúp slökun í jóga nidra
Við leggjum áherslu á að allir geti tekið þátt, óháð liðleika eða fyrri reynslu.
Við vinnum með:
- stólajóga, sem er öruggt, áhrifaríkt og fullkomið fyrir 60+
- kundalini jóga, sem styrkir orkuflæði og jafnvægi
- jóga nidra, djúpa slökun sem róar hugann og nærir taugakerfið
Stólajóga er alls ekki síðra en jóga á dýnu – það býður upp á sama ávinning, en með meiri mýkt og auðveldara aðgengi.
Sjálfsrækt sem styrkir nýjan lífskafla
Á hverjum morgni vinnum við með efni sem tengjast lífinu eftir sextugt:
- Mikilvægi félagslegra tengsla í nokkrum víddum
- Tækifæri og áskoranir á þriðja æviskeiðinu
- Hvað einkennir ólík tímabil ævinnar og lífssögu okkar
- Samskipti og samskiptasaga
- Leiðir til að halda góðri heilsu sem lengst (andlega, félagslega, líkamlega)
- Hvað rannsóknir sýna varðandi eftirsjá á efri árum
Þetta eru mildar, uppbyggjandi stundir sem hjálpa þátttakendum að dýpka sjálfsskilning og skapa nýja sýn á nýjan lífskafla.
Öndun, hugleiðsla og náttúran sem kennari
Við iðkum:
- öndunaræfingar sem róa og styrkja
- hugleiðslu sem leiðir inn í kyrrð
- núvitund í daglegum athöfnum
- léttar göngur í náttúru þar sem við tengjumst umhverfinu og sjálfum okkur
Gardavatn er fullkominn staður til að finna innri ró – vatnið, fjöllin og litlu bæirnir skapa umgjörð sem styður við endurnæringu.
Frjáls tími og ítölsk lífsgæði
Eftir hádegi er oft frjáls tími þar sem þú getur:
- slakað við sundlaugina
- farið í hjólatúr
- siglt á ferju milli bæja
- notið ískalds gelato á torginu
- eða einfaldlega leyft þér að vera
Ferðir um Gardavatn og dagsferð til Veróna eru hápunktar ferðarinnar og gefa innsýn inn i sögu og menningu Ítalíu.
Dagskrá
Your Title Goes Here
Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.
Dagur 1
Flug frá Keflavík og lent á Malpensa flugvelli. Fararstjóri tekur á móti þátttakendum og við tekur rútuferð á hótel.
Dagur 2
Við hefjum daginn á jóga og morgunverði og síðan munum við skoða okkur um. Hótelið er í bænum Saló við vesturbakka Gardavatnsins. Það tekur um 20 mínútur að ganga niður að vatninu og þar er skemmtileg gönguleið með vatnsbakkanum. Saló er um 10.000 manna bær og státar af dómkirkju í gotneskum stíl frá 15. öld. Þar við torgið er hægt að gæða sér á ís sem sagður er undursamlega rjómakenndur og sá besti við allt Gardavatn – ísbúðin heitir La Casa del Dolce eða Hús hins sæta. Þar er líka gamli bærinn og helsta verslunargatan, Via San Carlo, sem liggur frá dómkirkjunni að torginu Piazza Zanelli.
Dagur 3
Við hefjum daginn á jóga og síðan er dagurinn þinn. Hvað viltu að gera – fara í hjólatúr eða göngutúr, taka ferju í einhvern bæjanna við vatnið, kíkja á vínbúgarð, kannski slaka við vatnið eða við sundlaugina á hótelinu?
Dagur 4
Að loknu jóga og morgunverði verður val um að fara í siglingu frá bænum okkar Saló að eyjunni Isola del Garda sem er í einkaeigu, lítil en yndisfögur með fallegri lystihöll. Þaðan siglum við áfram til Sirmione, sem liggur á skaga við vatnið. Sirmione er fallegur gamall bær með kastala frá miðöldum og skemmtilegar litlar þröngar götur sem gaman er að þræða, kíkja í litlar búðir, setjast á kaffihús við torgið, og kannski fá sér eins og einn ítalskan ís í einhverri ísbúðanna. Greiða þarf aðgang í bátinn.
Dagur 5
Við hefjum dag að venju á jóga og morgunverði og síðan er frjáls dagur. Það er margt hægt að gera – skreppa í hjólatúr, taka ferju í einhvern bæjanna við vatnið, fara í létta göngu eða slaka við hótelið eða Gardavatnið fagra … eða bara eitthvað sem manni dettur í hug.
Dagur 6
Við förum með rútu til hinnar fallegu borgar Verona, þar má meðal annars líta hina einu sönnu Júlíu augum en saga hennar og Rómeós gerist þar. Við kíkjum á hús Júlíu þar sem Rómeó söng til ástarinnar sinnar undir svölunum. Við göngum um fallegar götur, sjáum ævafornt hringleikahús frá tíð Rómverja og förum um göng kastalans við ána.
Veróna hefur verið sögð eins og Rómarborg í smækkaðri mynd, þar eru alltént falleg torg og rómverskar minjar. Áin Adige liðast um gamla miðbæinn með ótal fallegum brúm, unnt er að kíkja inn í einhverja af öllum þeim gömlu kirkjum sem í bænum eru, rölta um markaðstorgið og setjast á veitingastað og kaffihús og fylgjast með mannlífinu.
Dagur 7
Við hefjum daginn á jóga og síðan er dagurinn þinn. Hvað viltu að gera – fara í hjólatúr eða göngutúr, taka ferju í einhvern bæjanna við vatnið, kíkja á vínbúgarð, kannski slaka við vatnið eða við sundlaugina á hótelinu?
Dagur 8
Við kveðjum hótelið okkar og bæinn Salo og ökum á Malpensaflugvöll. Hægt er að kaupa ferðina án flugs og bóka flugið sjálfur sé áhugi á að lengja ferðina eða breyta einhverju.
Algengustu spurningarnar
Your Title Goes Here
Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.
Þarf ég að vera liðug/ur til að vera með í jóga?
Nei, svo sannarlega ekki. Í ferðunum er ýmist leitt kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól, fyrir þá sem líkar illa að sitja í jógastöðu á dýnu. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.
Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og líkamlegt ástand eða hreyfifærni hamlar engum að taka þátt í því.
Hvernig jóga er kennt?
Við kennum ýmist kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga er tíminn samsettur af upphitun, röð af jógaæfingum, hugleiðslu og slökun. Með iðkun kundalini jóga flæðir lífsorkan okkar og eykur og jafnar streymi milli orkustöðva. Við fáum meira jafnvægi í starfsemi líkamans, þar með talið milli heilahvela og mikil áhersla er á örvun innkirtlakerfisins sem er svo mikilvægt heilbrigði okkar. Við þjálfum andlegan og líkamlegan styrk með líkamlegum æfingum og öndunaræfingum sem hreinsa og auka flæði orkunnar, undirstöðu heilbrigðis. Hugleiðslan í lok tímans færir okkur ró sem og andlegan styrk, og úrvinnslu úr því sem kann að valda okkur spennu og streitu.
Í jóga nidra er leidd slökun þar sem hvílt er í liggjandi stöðu og æfingar eru gerðar tengdar meðvitund um líkama og öndun sem miða að því að ná meiri ró og dýpri slökun. Í dýpstu slökun er komið inn í ástand þar sem heilun og friðsæld ríkir. Mörg okkar þekkja það ástand þegar hugurinn heldur okkur eins og í spennitreyju með sífelldum hugsunum en í dýpstu slökun losnum við þaðan. Einnig getur þar farið fram hreinsun alveg niður í undivitund, oft án þess að við vitum af því. Jóga nidra hentar vel þeim sem eru að fást við kvíða, streitu og kulnun.
Mér finnst erfitt að sitja í jógastellingu - get ég tekið þátt?
Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og því geta allir lagt stund á þetta jóga.
Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf, er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.
Fá starfsmannahópar styrki frá sínu félagi fyrir ferðinni?
Mörg stéttarfélög veita styrki fyrir ferðum eins og þeim sem Eilífðarsól stendur fyrir. Undanfarin ár hafa hópar starfsmanna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu farið í jógaferðir og lýst ánægju sinni með þær svo vitnað sé í ein ummælin hér á síðunni … "Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"
Kynntu þér málið hjá þínu stéttarfélagi eða sendu línu til okkar og við göngum í málið.
Eru ferðirnar ykkar bara fyrir konur?
Nei, alls ekki. Margir karlmenn hafa tekið þátt í starfsmannahópaferðum með okkur og notið þeirra jafn vel og konur. Karlmenn þurfa engu síður en konur að læra að slaka á og takast á við streitu.
Henta þessar ferðir einstaklingum?
Já, í ferðunum kynnast þátttakendur mjög vel og oft verða til vináttusambönd sem vara áfram og sumir hópar hittast áfram eftir ferðina eða halda sambandi sem segir nokkuð um þá góðu stemmingu sem fylgir þessum ferðum.













