Ítalía – Gardavatn

Jóga og sjálfsrækt

Helstu upplýsingar

Lengd ferðar

8 dagar / 7 nætur

Tímabil

7.-14. september 2024

Tegund jóga

Kundalini Jóga og Jóga Nidra

Verð

1 í 2ja manna herb. 285.000 kr.
2 í 2ja manna herb. 255.000 kr.

Innifalið

Flug, gisting með morgunverði, dagsferðir með leiðsögn til borganna Veróna og Feneyja, ferðir til og frá flugvelli, námskeið í jóga  og sjálfsrækt.

Kennarar

Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir leiðsögumaður og jógakennari

Sigríður Hulda Jónsdóttir
MBA og MA í náms- og starfsráðgjöf og eigandi SHJ ráðgjafar

Um ferðina

Vikudvöl við Gardavatn á Ítalíu með morgunjóga, hugleiðslu og sjálfsrækt. Eftir hádegið heimsækjum við heillandi staði eins og Veróna og Feneyjar og bæina við Gardavatn. Síðasta dag ferðar heimsækjum við hátísku- og menningarborgina Mílanó.

Ferð með þau fyrirheit að efla líkama, huga og sál!
Í sjálfsrækt verða umfjöllunarefni friður, íhugun, styrkleikar, gleði, jafnvægi, skemmtun, sérstaða, markmið, flæði, núvitund, sóknarfæri, upplifun, slökun, hugsanir, viðhorf. Í jóga kynnumst við leiðum til innri hlustunar, friðar og sáttar við okkur sjálf og umhverfið.

Þátttakendur námskeiðsins kynnast Jóga Nidra og hugleiðslu og vinna verkefni til að auka sjálfsþekkingu sína, greina áreiti í eigin lífi og átta sig á eigin viðbrögðum við álagi. Ræddar verða leiðir til að forgangsraða og viðhalda jafnvægi í daglegum verkefnum jafnt sem á álagstímum ásamt heppilegum næringarlindum og bjargráðum á álagstímabilum. Fjallað er um jákvæða hugsun, eigin viðhorf og lífshætti án streitu og kennd er slökunaræfing.

Hápunktar ferðar

Your Title Goes Here

Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.

Dagur 1 - Flug út

Flug frá Keflavík síðdegis og lent á Malpensa flugvelli. Fararstjóri tekur á móti þátttakendum og við tekur rútuferð á hótel.

Dagur 2 - Njótum Saló

Að loknu jóga og morgunverði eigum við spjall saman þar sem við leggjum inn umhugsunarefni fyrir sjálfsræktina og ræðum komandi viku.

Hótelið er í bænum Saló við vesturbakka Gardavatnsins. Niður að ströndinni er 20 mínútna ganga frá hóelinu og þar er skemmtileg gönguleið með bökkum hins rómaða Gardavatns. Saló er um 10.000 manna bær og státar af dómkirkju í gotneskum stíl frá 15. öld. Þar við torgið er hægt að gæða sér á ís sem sagður er sá besti og rjómakenndasti við allt Gardavatn – ísbúðin heitir La Casa del Dolce eða Hús hins sæta. Þar er líka gamli bærinn og helsta verslunargatan, Via San Carlo, sem liggur frá dómkirkjunni að torginu Piazza Zanelli.

Dagur 3 - Slökun eða kannski Sirmione?

Dagurinn hefst á jóga og eftir morgunmat förum við í skemmtilega sjálfræktarvinnu (1-2 klst) þar sem við skoðum styrkleika okkar, sérstöðu og sóknarfæri. Við endum stundina á að setja okkur markmið sem við höfum í huga fram að næstu stund.

Það sem eftir er dagsins er frjáls tími. Það er hægt að skreppa í hjólatúr, eða í siglingu með ferjunni sem siglir um vatnið til dæmis til næsta bæjar, Sirmione sem er fallegur gamall bær með kastala frá miðöldum og skemmtilegar litlar götur sem gaman er að þræða og kíkja í litlar búðir. Eða fara í göngu, taka strætó til einhvers bæjar í grenndinni eða bara slaka við hótelið. Í garðinum er sundlaug þar sem ljúft er að sóla sig.

Dagur 4 - Hin ljúfa og fagra Verónaborg

Dagurinn hefst á jóga og eftir morgunmat ræðum við markmið okkar frá deginum áður. Verkefni dagsins (1-2 klst) er að við skoðum mátt eigin hugsana og hvaða áhrif viðhorf okkar hafa á lífsgæði. Við endum á markmiðssetningu.

Um hádegi förum við með rútu til hinnar fallegu borgar Verona og njótum leiðsagnar um land og þjóð. Veróna er einstaklega rómantísk borg og þar má meðal annars líta hina einu sönnu Júlíu augum en saga hennar og Rómeós gerist þar. Einnig eru þar skemmtilegar götur, fornt hringleikahús frá tíð Rómverja, falleg torg og kastali við ána.

Dagur 5 - Slökun, göngutúr, hjólatúr - eða?

Dagurinn hefst á jóga og eftir morgunmat ræðum við markmið okkar frá deginum áður. Verkefni dagsins (1-2 klst) er gleði og jafnvægi; hvaðan kemur gleðin, hvernig nærum við hana og hvað vinnur með/gegn jafnvægi okkar í daglegu lífi? Við endum á markmiðssetningu.

Eftir hádegi er margt hægt að gera – fara í hjólatúr, taka strætó eða ferju í einhvern bæjanna við vatnið, skreppa til Bergamo sem er fallegur bær, kíkja á vínbúgarð eða bara slaka … Stætóferð til Limone – „sítrónubæjarins“, tekur um klukkustund og til Gargnano um hálftíma en báðir þessir bæir eru við vesturhluta vatnsins.

Dagur 6 - Hinar ólýsanlegu Feneyjar

Dagsferð til Feneyja – bæjarins á floti. Eftir jóga og morgunverð ökum við um sveitir og eftir hraðbraut til Feneyja. Þangað er um tveggja klukkustunda akstur, en fer talsvert eftir umferð. Þar munum við spóka okkur í þessari skemmtilegu, hægsökkvandi borg, sigla í strætó eins og þar tíðkast, liðast um í gondól þeir sem vilja, skoða Markúsartorg og allar hinar fjölmörgu fallegu byggingar sem finna má þar í kring. Endilega að skoða Rialto brúna og Markúsarkirkjan er einstök en standa þarf í röð til að komast þar inn. Röðin gengur þó hratt en koma þarf bakpokum í geymslu áður en farið er í röð. Svo er líka gaman einfaldlega að rölta eitthvert og týnast og skoða mannlífið. Alltaf má spyrja til vegar eða feta sig til Markúsartorgs eftir merkingum.

Dagur 7 - Dagurinn er þinn!

Við hefjum daginn með jóga og eftir morgunmat förum við yfir markmið okkar frá degi 5. Viðfangsefni dagsins er forgangsröðun þar sem við förum yfir nærandi og íþyngjandi þræði í okkar daglega lífi, hugsunum og venjum. Endum svo á samantekt fyrri vinnudaga (2 klst).

Það sem eftir er dags er frjáls tími. Það er margt hægt að gera – skreppa í hjólatúr, taka ferju í einhvern bæjanna við vatnið, fara í létta göngu, eða bara slaka á í sólbaði ef svo ber undir… eða bara eitthvað annað sem til hugar kemur – dagurinn er þinn!

Dagur 8 - Ferðadagur heim

Við kveðjum hótelið okkar og ökum á Malpensaflugvöll og komum heim endurnærð eftir dásamlega dvöl. Einnig er valkostur að dvelja nokkra daga í viðbót í þessu fallega landi, Ítalíu.

Síðdegis förum við í rútuna sem ekur okkur út á Malpensaflugvöll. Þaðan eigum við flug og komum heim endurnærð eftir dásamlega dvöl. Einnig er valkostur að dvelja nokkra daga í viðbót í þessari mögnuðu borg – Mílanó en þá þarf að koma sér á flugvöll á eigin vegum með lest, rútu eða leigubíl.

Algengustu spurningarnar

Your Title Goes Here

Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.

Þarf ég að vera liðug/ur til að vera með í jóga?

Nei, svo sannarlega ekki. Í ferðunum er ýmist leitt kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól, fyrir þá sem líkar illa að sitja í jógastöðu á dýnu. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.
Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og líkamlegt ástand eða hreyfifærni hamlar engum að taka þátt í því.

Hvernig jóga er kennt?

Við kennum ýmist kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga er tíminn samsettur af upphitun, röð af jógaæfingum, hugleiðslu og slökun. Með iðkun kundalini jóga flæðir lífsorkan okkar og eykur og jafnar streymi milli orkustöðva. Við fáum meira jafnvægi í starfsemi líkamans, þar með talið milli heilahvela og mikil áhersla er á örvun innkirtlakerfisins sem er svo mikilvægt heilbrigði okkar. Við þjálfum andlegan og líkamlegan styrk með líkamlegum æfingum og öndunaræfingum sem hreinsa og auka flæði orkunnar, undirstöðu heilbrigðis. Hugleiðslan í lok tímans færir okkur ró sem og andlegan styrk, og úrvinnslu úr því sem kann að valda okkur spennu og streitu.

Í jóga nidra er leidd slökun þar sem hvílt er í liggjandi stöðu og æfingar eru gerðar tengdar meðvitund um líkama og öndun sem miða að því að ná meiri ró og dýpri slökun. Í dýpstu slökun er komið inn í ástand þar sem heilun og friðsæld ríkir. Mörg okkar þekkja það ástand þegar hugurinn heldur okkur eins og í spennitreyju með sífelldum hugsunum en í dýpstu slökun losnum við þaðan. Einnig getur þar farið fram hreinsun alveg niður í undivitund, oft án þess að við vitum af því. Jóga nidra hentar vel þeim sem eru að fást við kvíða, streitu og kulnun.

Mér finnst erfitt að sitja í jógastellingu - get ég tekið þátt?

Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og því geta allir lagt stund á þetta jóga.
Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf, er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.

Fá starfsmannahópar styrki frá sínu félagi fyrir ferðinni?

Mörg stéttarfélög veita styrki fyrir ferðum eins og þeim sem Eilífðarsól stendur fyrir. Undanfarin ár hafa hópar starfsmanna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu farið í jógaferðir og lýst ánægju sinni með þær svo vitnað sé í ein ummælin hér á síðunni … "Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ‍️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"

Kynntu þér málið hjá þínu stéttarfélagi eða sendu línu til okkar og við göngum í málið.

Eru ferðirnar ykkar bara fyrir konur?

Nei, alls ekki. Margir karlmenn hafa tekið þátt í starfsmannahópaferðum með okkur og notið þeirra jafn vel og konur. Karlmenn þurfa engu síður en konur að læra að slaka á og takast á við streitu.

Henta þessar ferðir einstaklingum?

Já, í ferðunum kynnast þátttakendur mjög vel og oft verða til vináttusambönd sem vara áfram og sumir hópar hittast áfram eftir ferðina eða halda sambandi sem segir nokkuð um þá góðu stemmingu sem fylgir þessum ferðum.

Umsagnir

Mæli heilshugar með

"Ég fór í júní í svona jógaferð sem var algjörlega dásamleg. Kúndalíni jóga á morgnana og hugleiðsla á kvöldin. Fínt lítið fjölskylduhótel og frábær ítalskur matur. Guðrún Ingibjörg jógakennari og ferðafélagarnir allir sem einn hið besta fólk. Mæli heilshugar með svona jógafrísferð."

Frábær ferð

"Alveg frábær ferð, mæli með þessu. Yndislegur farastjóri, skemmtilegir ferðafélagar, og unaðslegt umhverfi. "

Skylduferð

"Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ‍️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"

Besta sem ég hef gert fyrir mig ❤

Fór í jógaferð til Ítalíu með Guðrúnu og Sigríði Huldu í september sl. Þessi ferð er alveg ógleymanleg, sá auglýsinguna og bókaði mig og sá sko ekki eftir því. Það er nauðsynlegt að kúpla sig frá öllu, hugsa um elsku sig -kynnast frábærum konum alstaðar af landinu komandi úr alskonar aðstæðum. Jógað-hugleiðslan-sjálfsræktin þetta var magnað . Mæli með þessu 100% og langar aftur. Nýti mér fullt af því sem ég lærði og lærði líka fullt um sjálfa mig. Þær tvær eru snillingar.

- Kolbrún Stefánsdóttir

Vel heppnuð ferð

Vel heppnuð ferð. Hjólaferðirnar hápunkturinn.

- Ingvar Jónsson

Gaman að koma til Salo

Lítill og fallegur bær. Stutt í allar áttir. Fórum til Verona í dagsferð sem var mjög skemmtilegt. Einnig var kvöldið á vínekrunni ógleymanlegt.

- Kim Juncker Nielsen

Jógatímarnir komu á óvart

Frábært að blanda saman hreyfingu og slökun. Jógatímarnir komu á óvart. Frábært umhverfi til fara í hjólaferðir.

- Gauti Marinósson

Góða fararstjórn

Frábær ferð þar sem allt var gert til að láta okkur líða vel. Góð fararstjórn.

- Arnar Halldórsson

Fallegur staður

Fallegur staður, fallegt hótel. Jógað og hjólaferðirnar voru frábærar. Maturinnn var líka frábær.

- Jóhann Gunnar Einarsso

Hafa samband