Ferðirnar okkar
Hér fyrir neðan sjáið þið yfirlit yfir ferðirnar sem eru í boði
Jógaferðir á dagskrá
Ítalía - Sikiley
Sjö dagar af vellíðan
28. ágúst - 3. september 2022
7 daga dvöl á fallega uppgerðu sveitasetri á Sikiley. Við njótum hvíldar og vellíðunar í sveitakyrrð, iðkum jóga og slökum við sundlaugina, og fáum innsýn í menningu Sikileyjar í skoðunarferðum til nálægra bæja og staða.
Sikiley er stærsta eyja Miðjarðarhafsins, með löngum ströndum, stórbrotinni náttúru, og eldfjallinu Etnu. Eyjan býr yfir mjög heillandi sögu, menningu og matarhefð.
Ferðin er líka í boði sérsniðin fyrir hópa
7 dagar / 6 nætur
28. ágúst - 3. september 2022
Jóga Nidra og Kundalini Jóga
Frá 319.000 kr.
Ítalía - Gardavatn
Jóga og sjálfsrækt við Gardavatn
3. - 10. september
Við eflum líkama, huga og sál! Í jóga kynnumst við leiðum til innri hlustunar, slökunar, friðar og sáttar við okkur sjálf og umhverfið. Í sjálfsrækt spáum við í frið, íhugun, styrkleika, gleði, jafnvægi, skemmtun, sérstöðu, markmið, flæði, núvitund, sóknarfæri, upplifun, hugsanir og viðhorf.
Vikudvöl við Gardavatn á Ítalíu með morgunjóga, hugleiðslu og sjálfsrækt. Eftir hádegið heimsækjum við heillandi staði eins og Veróna og Feneyjar og bæina við Gardavatn. Síðasta dag ferðar heimsækjum Mílanó, borg hátísku og menningar.
8 dagar / 7 nætur
3. – 10. september 2022
Jóga nidra
Frá 239.000 kr.
Tillögur að ferðum
Við bjóðum sérsniðnar hópa- og starfsmannaferðir til Ítalíu, Slóveníu eða Tyrklands þar sem jóga er blandað saman við ferðagleði sem gerir ferðina og andann í hópnum enn betri!
Hér má sjá ferðir sem við höfum skipulagt fyrir hópa. Allar ferðir má skipuleggja og sníða að áhuga og óskum hópsins. Hafið samband fyrir frekari upplýsingar.
Ítalía - Gardavatn
Lystisemdir Ítalíu
8 daga dvöl í bænum Salo sem liggur við hið rómaða Gardavatn. Við iðkum jóga í undurfögru umhverfi sunnan Alpa og kynnumst ítalskri menningu með heimsóknum til bæja og borga. Við skoðum miðaldabæinn Sirmione, Veróna sem oft er kölluð litla Róm vegna sinna gömlu rómversku minja og hinar einstöku Feneyjar með iðandi gondólum og litríku lífi. Síðasta dag ferðar kynnumst við hátískuborginni Mílanó sem er þó svo margslungin og mögnuð að sækja heim.
Ferðin er líka í boði sérsniðin fyrir hópa
8 dagar / 7 nætur
Vor / Haust
Val um Jóga Nidra eða Kundalini Jóga
Tilboð fyrir hópa
Ítalía - Iseo vatn
Afslöppun í sveitarró
Dvöl á sveitahóteli hátt til fjalla við Iseovatnið, þar eru þrjár eyjar og munum við una í þeirri stærstu einn daginn. Við njótum kyrrðar og afslöppunar í sveitarró og förum í göngur út frá hótelinu í fallega náttúru með stórfenglegu útsýni. Borgin Veróna er heimsótt og hátískuborgin Mílanó.
Ferðin er 8 daga hæglætisferð – við lærum að una og njóta þess sem er, iðkum jóga nidra að morgni, veltum fyrir okkur hvað við viljum og setjum það sem ásetning inn í iðkunina. Gönguferðirnar miðast við getu hvers og eins.
8 dagar / 7 nætur
Vor / Sumar / Haust
Jóga nidra
Tilboð fyrir hópa
Slóvenía - Bled
Töfrandi fegurð
Slóvenía er land mikillar náttúrufegurðar með háum fjöllum og undirlendi og syðst liggur landið að Adríahafinu.
Bled vatn er sagt vera einn fallegasti staður í Evrópu og liggur í dal umkringt hæðum og snæviþöktum Ölpum þar sem Triglav tindur teygir sig upp í 2864 metra hæð.
Þetta er 8 daga hæglætisferð. Við unum í mikilli náttúrufegurð svæðisins við göngur um hæðir, gil og fjöll og njótum slakandi áhrifa sem ástundun yoga nidra gefur. Að auki förum við í dagsferð til Ljubljana sem nefnd hefur verið Litla Prag.
8 dagar / 7 nætur
Vor / Haust
Jóga nidra
Tilboð fyrir hópa
Tyrkland
Framandi heimur Tyrklands
Tyrkland er land margra heima með ríka menningu sem gerir það skemmtilegt ævintýr að heimsækja þetta land. Á suðvesturströnd Tyrklands er dvalið nærri strandbænum Fethiye sem liggur á móts við grísku eyjuna Rhodos. Undurfalleg náttúra, fagurblár sjór, framandi islömsk menning með moskum og bænakalli, spennandi matur, eldgömul saga, vagga Evrópu, fornar borgarústir, mjúkar strendur, bæir og sveitir.
8 dagar / 7 nætur
Vor / Haust
Val um Jóga Nidra eða Kundalini Jóga
Tilboð fyrir hópa
Tenerife
TENE - ekki bara til að TANA
Viltu losna úr drunga íslenska vetrarins og hlaða batteríin á eyju hins eilífa sumars? Annan hvern dag höldum við á vit ævintýra að loknum morgunnámskeiðum í jóga og sjálfsrækt - við förum í göngu nærri Teide eldfjalli, spókum okkur í Garachio sem er strandbær með laugum í flæðarmálinu. Hinn daginn eru rólegheit á dagskrá. Gististaður okkar er sannkallað listaverk gert af samspili náttúru og manns - Hacienda Cristoforo.
8 dagar / 7 nætur
Haust / Vetur / Vor
Jóga Nidra og Kundalini Jóga
Tilboð fyrir hópa
Algengustu spurningarnar
Your Title Goes Here
Your content goes here. Edit or remove this text inline or in the module Content settings. You can also style every aspect of this content in the module Design settings and even apply custom CSS to this text in the module Advanced settings.
Þarf ég að vera liðug/ur til að vera með í jóga?
Nei, svo sannarlega ekki. Í ferðunum er ýmist leitt kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól, fyrir þá sem líkar illa að sitja í jógastöðu á dýnu. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.
Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og líkamlegt ástand eða hreyfifærni hamlar engum að taka þátt í því.
Hvernig jóga er kennt?
Við kennum ýmist kundalini jóga eða jóga nidra. Í kundalini jóga er tíminn samsettur af upphitun, röð af jógaæfingum, hugleiðslu og slökun. Með iðkun kundalini jóga flæðir lífsorkan okkar og eykur og jafnar streymi milli orkustöðva. Við fáum meira jafnvægi í starfsemi líkamans, þar með talið milli heilahvela og mikil áhersla er á örvun innkirtlakerfisins sem er svo mikilvægt heilbrigði okkar. Við þjálfum andlegan og líkamlegan styrk með líkamlegum æfingum og öndunaræfingum sem hreinsa og auka flæði orkunnar, undirstöðu heilbrigðis. Hugleiðslan í lok tímans færir okkur ró sem og andlegan styrk, og úrvinnslu úr því sem kann að valda okkur spennu og streitu.
Í jóga nidra er leidd slökun þar sem hvílt er í liggjandi stöðu og æfingar eru gerðar tengdar meðvitund um líkama og öndun sem miða að því að ná meiri ró og dýpri slökun. Í dýpstu slökun er komið inn í ástand þar sem heilun og friðsæld ríkir. Mörg okkar þekkja það ástand þegar hugurinn heldur okkur eins og í spennitreyju með sífelldum hugsunum en í dýpstu slökun losnum við þaðan. Einnig getur þar farið fram hreinsun alveg niður í undivitund, oft án þess að við vitum af því. Jóga nidra hentar vel þeim sem eru að fást við kvíða, streitu og kulnun.
Mér finnst erfitt að sitja í jógastellingu - get ég tekið þátt?
Í jóga nidra eru þátttakendur leiddir í djúpa slökun þar sem mestmegnis er hvílt í liggjandi stöðu og því geta allir lagt stund á þetta jóga.
Í kundalini jóga eru stöður og æfingar aðlagaðar að þátttakendum og ef þarf, er hægt að gera margar æfinganna sitjandi á stól. Viðkomandi æfingar hafa alveg jafn mikil áhrif hvort sem þær eru framkvæmdar sitjandi á stól eða á jógadýnu.
Fá starfsmannahópar styrki frá sínu félagi fyrir ferðinni?
Mörg stéttarfélög veita styrki fyrir ferðum eins og þeim sem Eilífðarsól stendur fyrir. Undanfarin ár hafa hópar starfsmanna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu farið í jógaferðir og lýst ánægju sinni með þær svo vitnað sé í ein ummælin hér á síðunni … "Ferðin okkar til Ítalíu var dásamleg. Yndislegur fararstjóri, frábært jóganámskeið og endurnýjandi hugleiðsla. Kærar þakkir fyrir skipulagið. Dagskráin gekk öll framar vonum og skoðunarferðirnar voru æðislegar. Svona ferð ætti að vera skylda hjá KÍ ️og jafnvel gjaldfrjáls fyrir bugaða kennara!"
Kynntu þér málið hjá þínu stéttarfélagi eða sendu línu til okkar og við göngum í málið.
Eru ferðirnar ykkar bara fyrir konur?
Nei, alls ekki. Margir karlmenn hafa tekið þátt í starfsmannahópaferðum með okkur og notið þeirra jafn vel og konur. Karlmenn þurfa engu síður en konur að læra að slaka á og takast á við streitu.
Henta þessar ferðir einstaklingum?
Já, í ferðunum kynnast þátttakendur mjög vel og oft verða til vináttusambönd sem vara áfram og sumir hópar hittast áfram eftir ferðina eða halda sambandi sem segir nokkuð um þá góðu stemmingu sem fylgir þessum ferðum.
Umsagnir
Hafa samband

Hafa samband
Guðrún Ingibjörg
Jógakennari
Skilmálar
Fylgdu okkur

